
31/01/2025
GÖNGUFERÐ MEÐ RAFMAGNSHJÓLATVISTI Í AUSTURRÍSKU ÖLPUNUM 12.-19. JÚNÍ 2025
Gengið verður um fallega dali og fjöll í Hohe Tauern þjóðgarðinum í Austurríki og gist í þorpi sem heitir Neukirchen am Grossvenediger sem er í miðjum þjóðgarðinum.
Svæðið í heild sinni býður upp á fallegt landslag og útsýni sem á sér enga hliðstæðu. Allt í kringum þorpið eru skemmtilegar og fjölbreyttar gönguleiðir við ALLRA HÆFI.
Í Neukirchen er ætlunin að:
- ganga upp í dali Hohe Tauern þjóðgarðsins í 4-5 daga
- fara upp á Wildkogel með kláf og ganga þar svæðið
- hjóla í 1-2 daga á rafmangsreiðhjólum ef áhugi er á því
Varðandi göngurnar þá er gert ráð fyrir að þær taki um 3-5 klukkustundir (10-15 km, 5-600 hæðarmetrar, pásur og hádegisverður er innifalið í þessum tíma).
Þess má geta að ávallt er hægt AÐ FÁ SKUTL UPP OG/EÐA NIÐUR ÚR DÖLUNUM ef einhver treystir sér ekki að ganga báðar leiðir.
Gist verður á hinum rómaða hótel Hotel Kammerlander **** sem er í hjarta bæjarins og er öll aðstaða þar til fyrirmyndar. Gist er í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum en einnig eru glæsilegar íbúðir í boði. Á hótelinu er lítil sundlaug, sauna, gufubað og klefi með infrarauðu ljósi. Í garðinum er glæsileg náttúrulaug þar sem gott er að fá sér sundsprett eftir göngur dagsins og slaka svo á í síðdegissólinni. Einnig er hægt að panta nudd.
Hér getið þið séð heimasíðu hótelsins
http://www.hotel-kammerlander.at/
Alla dagana er INNIFALIÐ FULLT FÆÐI sem inniheldur stórt og fjölbreytt morgunverðar- og kvöldhlaðborð með ferskum vörum úr sveitinni í kring ásamt forrétta- og salathlaðborði.
Við smyrjum okkur nesti af morgunverðarhlaðborðinu og síðdegis þegar komið er til baka úr ferðum dagsins er boðið upp á kaffi og kökur.
Þeir sem ekki fara í ferðir og eru eftir á hótelinu fá léttan hádegisverð .
ALLIR DRYKKIR (nema sterkt áfengi) ERU FRÍIR TIL KL. 20.30 á kvöldin.
Við munum taka á móti ykkur á flugvellinum í Munchen og vera með ykkur allan tímann. Óhætt er að segja að við þekkjum mjög vel til svæðisins, fólksins og tungumálsins enda höfum við verið með annan fótinn þarna sl. 30 ár!
INNIFALIÐ Í VERÐI: Flug með Icelandair til og frá Munchen
· Sjö nætur á hótel Hotel Kammerlander með fullu fæði
· Akstur til og frá Munchen (ca. þrír tímar hvor leið)
· Leiga á rafmagnsreiðhjólum í einn dag
· Aðgangur á safn Þjóðgarðsins Hohe Tauern í Mittersill
· Ferðir í kláfa á svæðinu
· Ferðir með lestum og strætó á svæðinu
· Aðgangur að Krimmlarfossunum og að fræðasetrinu tengdum fossunum
· Skattar og gjöld
· Leiðsögn, skipulag og fararstjórn
VERÐ MIÐAST VIÐ LÁGMARK 20 MANNA ÞÁTTTÖKU VIÐ GENGI DAGSINS Í DAG. Kr.349.900 kr m.v. tveggja manna herbergi. Ef um einstaklingsherbergi er að ræða bætast við 35.000 kr.
Staðfestingargjald er 50.000 kr og þarf að greiða við skráningu inn á eftirfarandi reikning, ásamt staðfestingarpósti á [email protected]
Freyja Travel
kt. 6504062140
370-26-039638
Með von um góða þátttöku og skemmtilega ferð!