30/05/2022
Penthouse íbúð á annarri hæð til leigu á Spáni með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 80fm þaksvölum. Íbúðin er staðsett í hverfi fyrir ofan Benidorm. Það tekur uþb. 35 mín að keyra frá Alicante flugvelli.
Tvö svefnherbergi eru með 160cm rúmi (annað með svölum) og eitt herbergi með tveim 90cm rúmum auk þess er eitt barnarúm. Stofa með nýju 65" Samsung smart sjónvarpi auk þess sem annað minna smart Samsung tæki er í einu svefnherberginu. Þráðlaust net.
Mjög góð loftkæling er í íbúðinni. Eldhús með öllum helstu áhöldum og tækjum. Út frá stofu er farið á litlar svalir og af þeim er gengið upp stiga uppá þaksvalir með útsýni yfir alla standalengjuna á Benidorm. Útisturta er á þaksvölunum auk þess sem þar er þvottavél.
Eitt bílastæði fylgir íbúðinni en nóg er af öðrum stæðum þarna við húsið.
Sameiginleg sundlaug er í læstum garði ásamt leikvelli fyrir börn.
Mælum með að vera með bíl en það tekur aðeins 3 mín að keyra til La Marin Mall og 5 mín á ströndina og í alla afþreyingu á Benidorm eins og verslanir, veitingastaði, skemmtistaði og barina.
Golfvellir:
4 mín akstur á Puig Campana Golf
7 mín akstur á Villaitana Golf
11 mín akstur á Las Rejas Golf
Terra Mítica skemmtigarður - 6 mín akstur
Terra Natura dýragarður - 8 mín akstur
Aqua Natura vatnsbrautagarður - 8 mín akstur
Aqualandia vatnsbrautagarður - 15 mína akstur
Nánari upplýsingar í PM.