03/05/2023
Bókanir fyrir sumartímann komnar af stað.
Ný 81m2 íbúð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherberjum á frábærum stað í Villamartin hverfinu, Torrevieja. Íbúðin er staðsett miðsvæðis milli fjögurra frábærra golfvalla og Zenia Boulevard verslunarkjarnans en í göngufæri er öll helsta þjónusta, matvörubúð, veitingastaðir ofl.
Gala íbúðakjarninn er á afgirtu svæði og fylgir íbúðinni merkt bílastæði. Íbúðin er á jarðhæð með sér garði en hlið er inn í sameiginlegan garð með sundlaug, vaðlaug og tveimur heitum pottum. Jafnframt er leikvöllur fyrir börn á afgirtu svæði en íbúðin er með mjög gott útsýni yfir leikvöllinn.
Nánasta umhverfið:
‣ Fjórir frábærir golfvellir - 1 til 5 km
‣ Zenia Boulevard verslunarkjarninn - 1,5 km
‣ La Zenia ströndin - 3 km
‣ Laugardagsmarkaður & “Laugavegurinn” - 1 km
‣ Tívolí, rennibrautagarður ofl - 15 mín akstur
Aðbúnaður:
‣ Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum, annað með hjónarúmi og hitt með tveimur einbreiðum rúmum
‣ Tvö baðherbergi með sturtum, annað innangengt af hjónaherbergi
‣ Loftkæling
‣ Þráðlaust internet
‣ Sjónvarp
‣ Þvottavél
‣ Örbylgjuofn, uppþvottavél, ísskápur, frystir, grill
‣ Sængurföt, handklæði og annað lín
€395 - Vikuleiga vetur - nóvember-mars
€595 - Vikuleiga vor/haust - apríl,maí/sept,okt
€695 - Vikuleiga sumar - júní, júlí, ágúst
€695 - Vikuleiga - jól og áramót / páskar
- Við verðið bætist brottfararþrif, € 80
Innifalið er vatn, rafmagn, Wifi, rúmföt, handklæði og tuskur.