Spánar Lúx - Lomas de Cabo Roig

Spánar Lúx - Lomas de Cabo Roig Glæsilegt lúxus hús með stórum einkagarði sem snýr í suður á frábæru svæði. Göngufæri í matvörubúð og fjöldinn af veitingastöðum og börum beint á móti.

Stutt í golfvelli og einungis 5 min akstur niður á strönd.

02/07/2024
22/06/2024
11/06/2024

Mjög vandað fjarkahús á frábærum stað þar sem stutt er í alla þjónustu, hverfið heitir Lomas de Cabo Roig. Húsið er beint á móti mörgum góðum veitingarstöðum og börum. Þar er spiluð lifandi tónlist yfir daginn og slökkt er á úti tónlist í kringum miðnætti. Húsið snýr í suður og því er sól allan daginn í einkagarðinum. Húsið er 100m2 á tveimur hæðum og með stórum þaksvölum. Stór útigeymsla er við húsið sem er frábær fyrir golfsettin.

Á fyrstu hæð er björt stofa ásamt borðstofu og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er hágæða 65" Samsung snjall sjónvarp með Netflix og þúsundum annara sjónvarpsstöðva og bíómynda, í húsinu eru allskonar spil fyrir gesti, einnig er Marshall Bluetooth hátalari í stofunni. Út frá stofunni er hægt að ganga beint út í garðinn umhverfis húsið, þar eru sólbekkir, hornsófi, borð, stólar, Weber gasgrill, útisturta og Pergola til að fá skjól frá sólinni.

Rúmgott og vel búið eldhús með ísskáp með frysti, örbylgjuofni, Nespresso kaffivél, brauðrist, heilsugrill, uppþvottavél og öllum helstu áhöldum til matargerðar. - Loftkæling er í stofu og eldhúsi.

Svefnherbergin eru þrjú:

- Herbergi nr.1 er á jarðhæðinni það er með vönduðu 160cm breiðu hjónarúmi, fataskápum, loftkælingu og hægt að ganga út á veröndina.
- Herbergi nr. 2 er á annari hæð með vönduðu 180cm breiðu rúmi, fataskápum, loftkælingu og hægt að opna út á litlar svalir.
- Herbergi nr. 3 er hjónasvíta á annari hæð með vönduðu 180cm breiðu rúmi, fataskápum, loftkælingu og innangengt er inná sér baðherbergi með sturtu.
Útgengi er út á svalir frá hjónasvítu á annar hæðinni og þar er hægt að sitja og njóta mannlífsins í kring. Einnig er barnaferðarúm og matarstóll fyrir ung börn.

Baðherbergin eru tvö:

- Baðherbergi á 1. hæð er með salerni, handlaug, innréttingu og sturtu. Hárblásari og sléttujárn er í húsinu.
- Baðherbergi á 2. hæð er með salerni, handlaug, innréttingu og hillum og rúmgóðri sturtu.
Baðhandklæði fyrir gesti eru innifalin í leigu, einnig eru handklæði til að nota til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Þvottavél og önnur hreinlætisáhöld eru í húsinu.

Svalir, verönd og sameignlegur sundlaugargarður með leiksvæði fyrir börnin
Á annari hæð eru svalir út frá hjónasvítu þar eru stólar og borð.
Á þriðju hæð hússins er frábært útsýni frá þaksvölum með sófasetti og tvöföldum sólbekk, þar sem hægt er að horfa út á hafið.

Stór einkagarður er við Oasis Hill með notalegum hornsófa, sólbekkjum, borði, stólum, útisturtu, Weber gasgrilli og einnig er Pergóla.
Í sameigninni er mjög fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með tveimur stórum sundlaugum sem gestir hafa aðgang að. Þar er einnig leikvöllur fyrir börn.
Einnig fylgja fjögur reiðhjól ásamt hjálmum fyrir gesti.

Laus tímabil 2024 & 2025 🌞🇪🇸
10/06/2024

Laus tímabil 2024 & 2025 🌞🇪🇸

Húsið sem við leigjum út er á tveimur hæðum og er með þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, þannig það er pláss fyrir s...
06/06/2024

Húsið sem við leigjum út er á tveimur hæðum og er með þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, þannig það er pláss fyrir s*x einstaklinga 🤩

Við erum einnig með ferða-barnarúm & stól.

Þú getur lesið meira um húsið og hverfið í linknum í bio.

🌞🇪🇸
03/06/2024

🌞🇪🇸

🏖️ Margar frábærar strendur tilheyra Costa Blanca ströndinni. Hægt er að ganga meðfram strandlengjunni eftir göngustígum...
20/05/2024

🏖️ Margar frábærar strendur tilheyra Costa Blanca ströndinni. Hægt er að ganga meðfram strandlengjunni eftir göngustígum. Hægt er að finna allskonar sjósport, leigja Jetski, sigla smábát, leigja paddleboard, leigja bananabát, hjólabát og svo framvegis. Finndu þína strönd á svæðinu.

⛳️Costa Blanca svæðið er draumur golfara, mikill fjöldi frábærra golfvalla þar sem allir geta fundið skemmtilega velli v...
20/05/2024

⛳️Costa Blanca svæðið er draumur golfara, mikill fjöldi frábærra golfvalla þar sem allir geta fundið skemmtilega velli við hæfi. Skemmtilega hannaðir vellir, þar sem fer saman landslag, mikill trjágróður og ótrúlegar vatnshindranir. Í húsinu er útigeymsla fyrir þitt gólfsett🏌️‍♀️🏌️

🌞🇪🇸
20/05/2024

🌞🇪🇸

Dirección

Calle Cabo Roca, Orihuela (Alicante)
Orihuela
03189

Página web

Notificaciones

Sé el primero en enterarse y déjanos enviarle un correo electrónico cuando Spánar Lúx - Lomas de Cabo Roig publique noticias y promociones. Su dirección de correo electrónico no se utilizará para ningún otro fin, y puede darse de baja en cualquier momento.

Contato La Empresa

Enviar un mensaje a Spánar Lúx - Lomas de Cabo Roig:

Videos

Compartir