15/06/2024
KOMDU MEÐ Í ÆVINTÝRAGÖNGU Á HORNSTRÖNDUM OG BÓKAÐU STRAX Í DAG!
_____
ÖRFÁ LAUS PLÁSS Í AÐALVÍKURFERÐ Í BYRJUN JÚLÍ !
_____
Í sumar (2024) eru fyrirhugaðar gönguferðir með leiðsögn um Aðalvík á Hornströndum. Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar í mögnuðu landslagi.
Um er að ræða tvær dagsferðir í hverri ferð með léttan bakpoka út frá tjaldbækistöð.
Báðar göngurnar eru nokkuð langar (um 20 km / ca. 7-9 klst) og krefjast þess að fólk sé í ágætu gönguformi.
Hópurinn gistir þrjár nætur í eigin tjöldum við íbúðahús með salernisaðstöðu á Látrum í Aðalvík. Hámark 10 manns í hóp.
_____
Dagsetningar 2024:
29.6-2.7 - Fullbókað
3.-6.7 - Örfá laus pláss
6.-9.7 - Örfá laus pláss
_____
Leiðsögumaður er Níels Guðmundsson. Níels er menntaður gönguleiðsögumaður. Hann hefur dvalið á Látrum í Aðalvík á nánast hverju sumri sl. 25 ár og þekkir staðhætti mjög vel.
Hafið samband: [email protected] eða PM
——
Umsagnir göngugarpa úr fyrri ferðum með Aðalvíkurgöngum:
“Einstök upplifun og allt skipulag í alla staði til fyrirmyndar. Göngurnar voru krefjandi en mjög skemmtilegar og virkilega gaman að ganga með einhverjum sem þekkir hverja þúfu” (Ingibjörg og Siggi)
,,Ferð okkar hjóna til Aðalvíkur var einstaklega ánægjuleg og skemmtileg. Þar lagðist allt á eitt; veðrið, náttúran, sagan, ferðafélagarnir en ekki síst allur aðbúnaður, leiðsögn og viðkynning þeirra hjóna, Níelsar og Hönnu. Okkur langar að fara aftur næsta sumar og líka þarnæsta sumar. Það segir allt sem segja þarf" (Siggi og Áslaug)
“Magnað ævintýri” (Sylvía og Svenni)
,,Stórfenglegt umhverfi, innihaldsrík leiðsögn. Ógleymanleg upplifun, jafnt á göngu sem í gestastofu” (Ingvar og Ásta)
“Ferðin var mikið ævintýri og fór fram úr væntingum okkar. Allt saman var vel skipulagt í alla staði og leiðsögnin framúrskarandi. Það hefur lengi verið draumur okkar að ferðast um Hornstrandir og skipti sköpum fyrir okkur að geta haft aðgang að húsi fyrir og eftir göngu. Takk fyrir að setja saman flotta ferð!” (Binni og Pálína)
"Gönguferðirnar fínar, gott tempó og enginn asi. Reglulegar sögustundir skemmtilegar og fróðlegar. Upplifun á hjara veraldar" (Bjarki og Anna)