25/07/2024
Hakuna Matata 🦒 Næsta ferðin okkar til Kenía verður 31. janúar-12. febrúar ✈️ Það er einstök upplifun að upplifa dýrin í sínu náttúrulega umhverfi og Kenía er einstakur áfangastaður fyrir safarí með sína fallegu þjóðgarða og gífurlega ríkt dýralíf 🦁 🐘🦓🦩 Í ferðinni heimsækjum við meðal annars Maasai Mara þjóðgarðinn sem er einn sá þekktasti í heiminum vegna mikils fjölda villtra dýra, þar sem við sjáum meðal annars ljón, gnýi/wildebeest, sebrahesta, gíraffa, buffalóa, blettatígur og flóðhesta, Amboseli þjóðgarðinn sem er þekkt fyrir afrísku fílana og fallegt útsýni til Kilimanjaro, og í Naíróbí meðal annars Karen Blixen safnið. Glæsilegir gististaðir eru sérvaldir í ferðinni eins og ávallt í ferðum Kleopatratours ✨
Hægt er að skoða ferðalýsinguna fyrir þessa skemmtilegu ferð hér: https://kleopatratours.is/product/safariferd-til-kenia-2025/