Vietnam - Ljósmyndaferð í ágúst 2023
LJÓSMYNDAFERÐ TIL VIETNAM!
30. ágúst – 15. September 2023
Viðamesta skipulagða ferð til Vietnam sem í boði er!
Upplifðu Vietnam með annarri og meiri nálgun við heimamenn en aðrar ferðir bjóða upp á.
Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n í ljósmyndun, þessi ferð er fyrir alla. Íslensk fararstjórn og 2 atvinnuljósmyndarar sem fylgja þér allan tímann og sjá til þess að þú náir myndum á heimsmælikvarða.
Ljósmyndaferð til VIETNAM 25. ágúst - 8. september 2022
Víetnam ferðin er ferð sem flestir fara bara einu sinni yfir ævina því er hún sett upp stútfull af tækifærum, ævintýrum, ólíkri reynslu og upplifun. Við ferðumst þvert yfir landað frá Sapa, nyrst í Vietnam við landamæri Kína, yfir til Mekong Delta syðst í Víetnam.
Þetta er ljósmyndaferð, við köllun þetta ferðaljósmyndun… sem þýðir það að við myndum það sem við sjáum og okkur þykir áhugavert. Við heimsækjum heimafólki á heimilum og vinnustöðum, spjöllum við fólk og tengjumst, myndum fólk í daglegum athöfnum, við ferðumst um mögnuð landsvæði, við setjum upp módelmyndatökur, segum littlar sögur með uppsettum myndum. Þessi ferð hefur allt, allt landið undirlagt, ólík svið ljósmyndunar, fullkomið sambland af upplifun og ljósmyndun.
Þessi jósmyndaferð er óháð þekkingu á ljósmyndun eða búnaði, við vinnum með allt frá símum og uppúr. það er nóg að hafa áhuga á því að taka myndir til að njóta ferðarinnar, við sjáum um að þú “náir myndinni”
2 heimsklassa ferðaljósmyndarar, islenskur og víetnamskur fylgja hópnum og aðstoða, auk hefðbundins leiðsögumanns og túlks. Eftir ferðina verða allir þátttakendur betri og reyndari ljósmyndarar.
Í þessu myndabandi er sýnishorn af myndum ferðarinnar, pínulítið sýnishorn af upplifunum og tækifærum þáttakenda.
Allir munu koma heim með heimsklassa myndir, auk frábærra minninga… því þessi ferð er eitt af því besta sem þú getur gert!